Ferðir í boði

Bosnía og Adríahafið – menningarferð um hjarta Balkanskagans

Ferðir til Balkanskagans – Bosnía og nágrannalönd. Í september 2026 er boðið upp á ferð til Bosníu og Hersegóvínu sem endar á slökun í Split.

14 daga ferð til Bosníu og Balkanskagans. Þessi hópferð leiðir ferðalanga um Bosníu og Króatíu þar sem saga, menning og fjölbreytt landslag Balkanskagans mynda einstaka heild. Ferðin hefst með flugi til Split í Króatíu en þaðan liggur leiðin yfir landamærin til Bosníu og Hersegóvínu þar sem fyrstu dagarnir eru í Mostar. Þaðan heldur ferðalagið áfram um sögufrægar borgir, fjallaþorp og fallegt landslag svæðisins.

Dagskráin er skipulögð þannig að gott jafnvægi sé á milli leiðsagnar, upplifana og frjáls tíma. Ferðinni lýkur með rólegum dögum í Split þar sem hægt er að njóta strandlífs, stemningar og fallegra söguborgar við Adríahafið áður en haldið er heim til Íslands.

Í ferðinni gistir hópurinn á vel völdum hótelum og ferðast með rútu með bílstjóra. Leiðsögn er í höndum eiganda Balkan Travel sem talar bæði íslensku og bosnísku. Hún er fædd í Bosníu og Hersegóvínu en hefur búið á Íslandi frá barnæsku og býr því yfir góðri þekkingu á Balkan svæðinu. Fararstjóri er með hópnum alla ferðina og alltaf reiðubúin til hjálpar. Hún er vel kunnug staðháttum og aðstoðar við val á veitingastöðum og valfrjálsum ferðir

Ferðin hentar vel fyrir þá sem vilja kynnast Balkanskaganum á þægilegan og skipulagðan hátt. Ferðin sameinar menningu, sögu, náttúru og matargerð og hentar bæði einstaklingum og pörum sem vilja upplifa nýtt svæði í Evrópu í litlum og persónulegum hópi.

Ferðin í stuttu máli

9.–22. september 2026

  • 14 dagar / 13 nætur
  • Bosnía og Split
  • Rúta með loftkælingu
  • Íslensk leiðsögn 
  • Vönduð 4 stjörnu hótel
  • Lítill hópur, hámark 20 manns

Innifalið í ferðinni

 

  • Flug frá Íslandi til Split (fram og til baka)
  • Flugvallarskattar og gjöld
  • Innritaður farangur og handfarangur
  • Allur akstur samkvæmt ferðaprógrammi
  • Aðgangur að völdum náttúru- og menningarstöðum

Takmarkaður sætafjöldi í boði

Verð

499.000 kr

á mann

Staðfestingargjald: 100.000 kr
Lokagreiðsla 45 dögum fyrir brottför

Ekki innifalið

  • Hádegis- og kvöldverðir (nema annað sé tekið fram)
  • Drykkir
  • Þjórfé (veitingastaðir, leiðsögn, bílstjóri)
  • Persónuleg útgjöld
  • Valfrjálsar afþreyingar
  • Ferðatryggingar

Ferðaáætlun

Ísland – Split – Mostar

Akstur: Split → Mostar
Aksturstími: um 2,5–3 klst

Ferðin hefst með flugi til Split í Króatíu og akstri yfir landamærin til Bosníu og Hersegóvínu. Seinnipartinn komum við til Mostar þar sem hópurinn kemur sér fyrir og nýtur fyrstu kvöldstundarinnar saman í borginni.

Nánar lýsing á deginum

Ferðin hefst með flugi frá Íslandi til Split í Króatíu. Við komu taka fararstjóri og bílstjóri á móti hópnum á flugvellinum og haldið er strax af stað til Bosníu og Hersegóvínu.

Eftir að hafa yfirgefið strandhéruð Dalmatíu liggur leiðin yfir landamærin og inn í Hersegóvínu-hérað þar sem landslagið breytist smám saman í fjallshlíðar, vínekrur og litla bæi.

Seinnipart dags komum við til Mostar, einnar þekktustu borgar Bosníu og Hersegóvínu. Borgin er sérstaklega þekkt fyrir Stari Most, steinbrú frá 16. öld sem spannar ána Neretva og er eitt helsta kennileiti landsins.

Eftir innritun á hótel hittist hópurinn um kvöldið í sameiginlegum kvöldverði og nýtur fyrstu kvöldstundarinnar í Mostar.

Gisting: Mostar (1. af 3. nóttum)

Mostar – saga, menning og líf í gamla bænum

Staðsetning: Mostar
Akstur: Stuttur akstur innan borgar

Dagurinn hefst með leiðsögn um gamla bæ Mostar þar sem Stari Most brúin, moskur og steingötur segja sögu borgarinnar. Síðdegis er farið upp á Fortica útsýnispallinn og kvöldið er frjálst til að njóta stemningarinnar við ána Neretva.

Nánar lýsing á deginum

Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en haldið er í leiðsögn um gamla bæinn í Mostar.

Í fylgd leiðsögumanna frá svæðinu og fararstjórans gengur hópurinn um steinslóðir bæjarins þar sem moskur, handverksverslanir og gömul tyrknesk hús einkenna sögu borgarinnar. Á leiðinni er einnig farið yfir hina sögufrægu Stari Most brú sem tengir saman tvo hluta borgarinnar.

Leiðsögnin gefur góða innsýn í sögu Mostar, allt frá tímum Ottómanveldisins til atburða 20. aldar.

Eftir leiðsögnina leggjum við af stað í stuttan akstur upp á Fortica útsýnispallinn sem stendur á hæð fyrir ofan Mostar. Þaðan opnast víðsýnt útsýni yfir borgina, ána Neretva og fjalllendið sem umlykur svæðið. Frá útsýnis pallinum sést vel hvernig borgin liggur í dalnum og hvernig Stari Most brúin tengir saman tvo hluta hennar. Hér gefst góður tími til að njóta útsýnisins og taka myndir áður en haldið er aftur niður í borgina.

Fyrir þá sem vilja upplifa meira af svæðinu er einnig mögulegt að heimsækja vínakra í Herzegovina-héraði, taka þátt í vínsmökkun, fara í stutta skoðunarferð um nærliggjandi þorp eða njóta bosnískar matarmenningar. 

Kvöldið er frjálst og margir velja að njóta kvöldverðar í gamla bænum þar sem stemningin við ána Neretva er sérstaklega notaleg á kvöldin.

Gisting: Mostar (2. af 3. nóttum)

Dagsferð um Hersegóvínu – Blagaj, Počitelj og Kravice fossar

Staðsetning: Dagsferð frá Mostar
Akstur: um 2–2,5 klst samtals yfir daginn

Dagsferð um Herzegovina-hérað með stoppum í Blagaj, Počitelj og við Kravice fossana. Dagurinn sameinar fallega náttúru, sögufræga staði og afslappaðan tíma við fossana áður en haldið er aftur til Mostar.

Nánar lýsing á deginum

Eftir morgunverð á hótelinu leggjum við af stað í dagsferð um Hersegóvínu-hérað þar sem ár, fjöll, gamlir bæir og vínekrur setja svip á landslagið.

Dagurinn er skipulagður með nokkrum fallegum stoppum á leiðinni þannig að það gefst góður tími til að skoða staðina og njóta landslags Hersegóvínu-héraðsins.

Fyrsta stoppið er í Blagaj, litlu þorpi skammt frá Mostar. Þar stendur eitt þekktasta kennileiti svæðisins, Blagaj Tekke, dervís-klaustur frá 16. öld sem stendur við upptök árinnar Buna undir háum klettavegg. Mögulegt er að fara inn í klaustrið, fræðast um sögu og trúarhefðir staðarins. Staðurinn er sérstaklega þekktur fyrir einstaka staðsetningu sína þar sem tær á rennur út úr helli í klettinum og myndar rólegt og fallegt umhverfi. 

Frá Blagaj liggur leiðin áfram til Počitelj, sögufrægs miðaldabæjar sem stendur í hlíð við ána Neretva. Počitelj er einn best varðveitti sögustaður Bosníu og Hersegóvínu og er þekktur fyrir steinhús, þröngar götur og fallegt útsýni yfir dalinn. Hér gefst tími til að ganga upp í gegnum gamla bæinn, skoða moskuna og virkið efst á hæðinni eða einfaldlega njóta útsýnisins yfir landslag Hersegóvínu.

Að heimsókninni lokinni er stoppað í hádegisverð á svæðinu þar sem hópurinn fær tækifæri til að kynnast matargerð Hersegóvínu.

Eftir hádegismat er haldið áfram til Kravice fossana þar sem fossarnir falla niður í hringlaga vatn umkringt gróðri sem skapar friðsælt og fallegt umhverfi. Hér gefst góður tími til að njóta svæðisins, synda í vatninu eða fara á kajak. Við Kravice fossana er gert ráð fyrir rúmum frjálsum tíma þar sem ferðalangar geta slakað á áður en haldið er aftur til Mostar.

Síðdegis er haldið aftur til Mostar þar sem kvöldið er frjálst. 

Gisting: Mostar (3. af 3. nóttum)

Mostar – Jablanica – Sarajevo

Akstur: Mostar → Sarajevo
Aksturstími: um 2,5–3 klst (með stoppi)

Við yfirgefum Mostar og fylgjum ánni Neretva norður til Sarajevo með stoppi í Jablanica. Þar kynnumst við sögu svæðisins áður en komið er til Sarajevo þar sem kvöldganga um gamla bæinn Baščaršija gefur fyrstu tilfinningu fyrir borginni.

Nánari lýsing á deginum

Eftir morgunverð og útritun í Mostar liggur leiðin norður í átt að Sarajevo. Vegurinn fylgir ánni Neretva þar sem grænblátt vatnið rennur í gegnum þröngan dal milli fjallshlíða og kletta. Þegar ekið er lengra inn í landið víkja klettarnir smám saman fyrir grænni dölum og skóglendi sem einkenna miðhluta Bosníu.

Á leiðinni stoppum við í Jablanica, litlum bæ sem er þekktur fyrir sögulegan atburð úr seinni heimsstyrjöldinni, svokallaða orrustu við Neretva. Þar má sjá hina eyðilögðu járnbrautarbrú sem varð eitt þekktasta tákn þessara atburða og minnir á dramatíska sögu svæðisins á stríðsárunum.

Í Jablanica heimsækjum við einnig safnið Battle for the Wounded on the Neretva, þar sem sagt er frá atburðum orrustunnar og mikilvægu hlutverki svæðisins í seinni heimsstyrjöldinni. Safnið veitir innsýn í söguna í gegnum ljósmyndir, muni og frásagnir sem varpa ljósi á þennan mikilvæga kafla í sögu Bosníu og Hersegóvínu.

Jablanica er einnig þekkt fyrir hefðbundinn rétt svæðisins, lambakjöt sem er hægeldað yfir opnum eldi, sem hefur lengi verið einn þekktasti matarréttur svæðisins. Eftir heimsóknina á safnið verður stoppað í hádegisverð í Jablanica, þar sem hópurinn fær tækifæri til að smakka þennan þekkta rétt. Að loknum hádegisverði höldum við ferðinni áfram í átt að Sarajevo.

Seinnipart dags komum við til Sarajevo, höfuðborgar Bosníu og Hersegóvínu. Borgin er einstök í Evrópu fyrir það hvernig ólík trúarbrögð og menningarheimar hafa lifað hlið við hlið í gegnum aldirnar. Í miðborginni má á stuttum göngutúr sjá moskur, kirkjur og samkunduhús sem endurspegla sögu borgarinnar sem menningarlegan suðupunkt austurs og vesturs.

Eftir komu á hótel gefst tími til að koma sér fyrir og hvíla sig eftir ferðalagið.

Um kvöldið er farið í stutta göngu um Baščaršija, gamla bæ Sarajevo. Gangan er róleg og gefur fyrstu tilfinningu fyrir borginni áður en nánari leiðsögn fer fram næsta dag.

Að göngunni lokinni er kvöldið frjálst og tilvalið að fá sér kvöldverð í gamla bænum þar sem fjölmargir veitingastaðir bjóða upp á hefðbundna bosníska matargerð.

Fararstjóri bendir á veitingastaði og aðstoðar við val á kvöldverð.

Gisting: Sarajevo (1. af 4. nóttum)

Sarajevo – saga, menning og lífið í gamla bænum

Staðsetning: Sarajevo
Akstur: Enginn akstur utan borgar

Gönguleiðsögn um Sarajevo þar sem saga borgarinnar, trúarleg fjölbreytni og helstu kennileiti koma við sögu. Seinnipartinn förum við upp á Žuta Tabija útsýnispallinn til að njóta sólseturs yfir borginni.

Nánari lýsing á deginum

Dagurinn hefst með gönguleiðsögn um Sarajevo í fylgd leiðsögumanns frá svæðinu ásamt farastjóra þar sem við kynnumst sögu borgarinnar og helstu kennileitum hennar.

Gengið er um Baščaršija, gamla bæ Sarajevo sem á rætur sínar að rekja til tíma Ottómanveldisins. Á leiðinni er stoppað við nokkra af þekktustu stöðum borgarinnar, þar á meðal Sebilj-brunninn á Baščaršija torginu, Gazi Husrev-bey moskuna og Sarajevo City Hall. Leiðsögninni lýkur við Latin-brúna, þar sem morðið á Franz Ferdinand árið 1914 átti sér stað og markaði upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar.

Eftir gönguleiðsögnina gefst stuttur frjáls tími í gamla bænum þar sem ferðalangar geta sest á kaffihús, skoðað verslanir eða rölt um svæðið.

Seinnipart dags hittist hópurinn aftur og fer saman upp á Žuta Tabija, útsýnispall ofan við gamla bæinn. Þar ætlum við að njóta sólseturs yfir Sarajevo og útsýnis yfir borgina og dalinn sem hún liggur í.

Fararstjóri getur leiðbeint um veitingastaði, söfn og aðra áhugaverða staði fyrir þá sem vilja nýta frjálsa tímann til að kanna Sarajevo nánar.

Gisting: Sarajevo (2. af 4. nóttum)

Dagsferð til Visoko og sameiginlegur kvöldverður

Staðsetning: Sarajevo – Visoko – Sarajevo
Akstur: um 1 klst hvora leið

Dagsferð til Visoko þar sem heimsóttir eru hinir svokölluðu bosnísku pýramídar og Ravne-göngin. Um kvöldið hittist hópurinn aftur í Sarajevo og nýtur sameiginlegs kvöldverðar með hefðbundinni bosnískri matargerð og lifandi tónlist.

Nánari lýsing á deginum

Eftir morgunverð á hótelinu leggjum við af stað í dagsferð til Visoko þar sem finna má hina frægu bosnísku pýramída.

Á svæðinu gefst tækifæri til að fræðast um hina svokölluðu bosnísku pýramídana, sem hafa vakið mikla athygli og umræðu á undanförnum árum. Sumir telja að fjöllin við Visoko séu leifar fornra pýramída á meðan aðrir fræðimenn telja þau vera náttúruleg jarðfræðileg fyrirbæri.

Hópurinn heimsækir meðal annars svæðið við Pyramid of the Sun og gengur inn í hluta af Ravne-göngunum, neðanjarðargöngum sem hafa fundist á svæðinu og eru hluti af þeirri rannsókn og umræðu sem hefur skapast í kringum staðinn.

Eftir heimsóknina er sameiginlegur hádegisverður þar sem gefst tækifæri til að slaka á áður en haldið er aftur til Sarajevo.

Eftir að hópurinn kemur aftur til Sarajevo er kvöldið tileinkað sameiginlegum kvöldverði þar sem boðið er upp á hefðbundna bosníska matargerð. Kvöldið er ætlað til að njóta góðs matar, samveru og lifandi tónlistar sem gefur innsýn í menningu og tónlistarhefðir Bosníu.

Gisting: Sarajevo (3. af 4. nóttum)

Sarajevo – valfrjálsar dagsferðir eða frjáls dagur

Staðsetning: Sarajevo

Frjáls dagur í Sarajevo þar sem ferðalangar geta annað hvort farið í valfrjálsar dagsferðir eða notið borgarinnar á eigin hraða. Þetta er góður dagur til að heimsækja söfn, taka kláf upp á Trebević-fjall eða rölta um gamla bæinn.

Nánari lýsing á deginum

Eftir viðburðaríka daga í borginni er valfrjáls dagur, ferðalangar geta annað hvort valið sér margar af spennandi dagsferðum frá Sarajevó eða notið dagsins í borginni.

Valfrjálsar dagsferðir
Í samstarfi við samstarfsaðila er mögulegt að fara í skipulagðar dagsferðir frá Sarajevo, til dæmis:

  • Fall of Yugoslavia – Sarajevo Siege Tour – ferð sem veitir dýpri innsýn í sögu borgarinnar á tíunda áratugnum og atburði umsátursins um Sarajevo
  • Lukomir fjallaferð – dagsferð upp á Bjelašnica-fjall þar sem heimsótt er eitt hæsta þorp Bosníu og Hersegóvínu í 1,495 hæð yfir sjávarmáli
  • Sarajevo Food & Craft Tour – leiðsögn þar sem kynnst er bosnískri matarmenningu, staðbundnum réttum og handverki borgarinnar
  • Olympic Mountains & Spring of River Bosna – dagsferð upp í fjöllin í kringum Sarajevo og að upptökum Bosna-árinnar

Fararstjóri aðstoðar við bókanir fyrir þá sem vilja fara í dagsferð.

Sarajevo er lífleg en jafnframt notaleg borg þar sem gamli bærinn og helstu kennileiti eru í stuttri göngufjarlægð hvert frá öðru. Borgin er þekkt fyrir afslappað andrúmsloft, kaffihúsamenningu og líflegar götur þar sem auðvelt er að rölta um og uppgötva nýja staði á eigin hraða.

Þeir sem kjósa að vera áfram í Sarajevo geta nýtt daginn til að kanna borgina betur. Meðal þess sem hægt er að gera er til dæmis:

  • heimsækja War Childhood Museum, eitt áhugaverðasta safn borgarinnar
  • taka kláf upp á Trebević-fjall og njóta útsýnis yfir Sarajevo
  • ganga um Vrelo Bosne, fallegt náttúrusvæði við upptök Bosna-árinnar
  • heimsækja söfn, gallerí eða markaði í miðborginni

Sarajevo er borg sem er sérstaklega skemmtileg að kanna á eigin hraða og þessi dagur gefur ferðalöngum tækifæri til að njóta borgarinnar á þann hátt sem þeim hentar best.

Gisting: Sarajevo (4. af 4. nóttum)

Sarajevo – Travnik – Jajce

Akstur: Sarajevo → Travnik → Jajce 
Aksturstími: um 2,5–3 klst samtals yfir daginn

Ferðin heldur áfram vestur yfir fjalllendi Bosníu til Travnik þar sem við skoðum gamla bæinn og virkið. Þaðan liggur leiðin til Jajce þar sem fossinn í miðjum bænum er eitt þekktasta kennileiti svæðisins.

Nánari lýsing á deginum

Eftir morgunverð og útritun af hótelinu í Sarajevo heldur ferðin áfram vestur yfir fjalllendi mið Bosníu. Á þessum hluta ferðarinnar breytist landslagið smám saman frá borgarumhverfi yfir í græna dali, skóga og minni bæi sem gefa góða mynd af daglegu lífi í þessum hluta landsins.

Fyrsta stoppið er í Travnik, bæ sem var um tíma stjórnsýslumiðstöð Ottómanveldisins í Bosníu. Þar göngum við um gamla bæinn, skoðum virkið sem rís yfir dalnum og kynnumst sögu svæðisins. 

Travnik er einnig þekktur fyrir matarmenningu sína, sérstaklega travnički ćevapi og hefðbundið bosnískt kaffi á kaffihúsinu Lutvina kahva, sem hefur verið vinsæll samkomustaður í bænum í yfir hundrað ár og stendur við uppsprettu Plava voda. Hér gefst ferðalöngum tækifæri til að smakka bæði og upplifa staðbundna kaffimenningu bæjarins áður en haldið er áfram ferðinni.

Frá Travnik liggur leiðin áfram til Jajce, eins sérstæðasta bæjar Bosníu og Hersegóvínu. Bærinn er staðsettur þar sem árnar Pliva og Vrbas mætast og er þekktur fyrir foss sem fellur beint niður í miðjum bænum.

Þar skoðum við fossinn og fræðumst um sögulegt mikilvægi bæjarins. Jajce gegndi meðal annars mikilvægu hlutverki í sögu fyrrum Júgóslavíu þar sem þar var stofnað samband ríkjanna á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar.

Gisting: Jajce (1. nótt)

Jajce– Bihać

Akstur: Jajce→ Bihać
Aksturstími: um 2–2,5 klst

Við höldum áfram til Bihać við ána Una í norðvestur Bosníu. Eftir innritun á hótel er farið í stutta gönguferð um bæinn og kvöldið er frjálst til að njóta stemningarinnar við ána.

Nánari lýsing á deginum

Eftir morgunverð í Jajce leggjum við af stað í átt að norðvesturhluta Bosníu þar sem landslagið breytist smám saman í skóga, dali og ár sem einkenna Una-svæðið.

Seinnipart dags komum við til Bihać, bæjar sem stendur við ána Una, eina tærustu og fallegustu á Bosníu og Hersegóvínu. Smaragðsgrænt vatn árinnar rennur í gegnum miðbæinn og gefur bænum sérstakt yfirbragð.

Eftir innritun á hótel er farið í stutta gönguferð um bæinn með staðbundnum leiðsögumanni, þar sem við kynnumst sögu staðarins og göngum meðal annars meðfram ánni Una.

Síðdegis og um kvöldið er frjáls tími. Bihać er sérstaklega notalegur á kvöldin þegar lífið færist að ánni þar sem kaffihús og veitingastaðir skapa líflega en afslappaða stemningu við vatnið.

Gisting: Bihać (1 af 2 nóttum)

Una þjóðgarðurinn

Akstur: Bihać – Una National Park, stuttur afkstur yfir daginn

Dagurinn er tileinkaður Una þjóðgarðinum þar sem fossar, græn dalalandslag og tær á mynda eina fallegustu náttúru Bosníu. Hér gefst tími til göngu um svæðið og mögulegt er að fara í rafting eða kajak.

Nánari lýsing á deginum

Þennan dag skoðum við Una þjóðgarðinn, eitt fallegasta náttúrusvæði Bosníu og Hersegóvínu.

Eftir morgunverð leggjum við af stað í stutta ferð að nokkrum af fallegustu stöðum þjóðgarðsins. Áin Una rennur í gegnum græna dali og myndar röð fossa og vatnsfalla sem hafa gert svæðið að einni helstu náttúruperlu landsins.

Við heimsækjum meðal annars Štrbački buk, stærsta foss þjóðgarðsins, þar sem vatnið fellur niður í kraftmiklum fossum umkringdum skógi og klettum. Á svæðinu eru göngustígar sem gera ferðalöngum kleift að njóta útsýnis yfir fossana og ganga um fallegt náttúrulegt umhverfi.

Fyrir þá sem vilja meiri ævintýra upplifun er einnig mögulegt að taka þátt í rafting- eða kajakferð á ánni Una, sem er ein vinsælasta útivistar upplifun svæðisins.

Síðdegis snúum við aftur til Bihać, þar sem kvöldið er frjálst til að njóta stemningarinnar í bænum. 

Gisting: Bihać (2 af 2 nóttum)

Bihać – Livno – Split

Akstur: Bihać → Livno → Split
Aksturstími: um 4–4,5 klst yfir daginn (með stoppum)

Ferðin liggur yfir fjalllendi vestur Bosníu til Livno þar sem mögulegt er að sjá villta hesta á sléttunum. Seinnipart dags er haldið yfir landamærin til Króatíu og komið til strandborgarinnar Split við Adríahafið.

Nánari lýsing á deginum

Dagurinn leiðir okkur í gegnum víðáttumikið fjalllendi vestur Bosníu til Livno-svæðisins, þar sem hópar villtra hesta lifa frjálsir á sléttunum, áður en ferðin heldur áfram til Adríahafsins og strandborgarinnar Split.

Í Livno fær hópurinn leiðsögn með staðarleiðsögumanni og kynnist bænum og sögu hans. Einnig verður farið í heimsókn á mjólkurbú sem hinn þekkta Livno-ost (Livanjski sir), sem er eina verndaða matvælaframleiðslan í Bosníu og Hersegóvínu. 

Eftir upplifunina gefst tækifæri til að njóta hádegisverðar á staðnum áður en við höldum ferðinni áfram yfir landamærin til Króatíu og í átt að Split, sem er lífleg strandborg við Adríahafið og koman þangað markar síðasta áfanga ferðarinnar.

Seinnipart dags komum við til Split þar sem hópurinn innritar sig á hótel. Kvöldið er frjálst og tilvalið að fara í stuttan göngutúr um gamla bæinn eða setjast niður á veitingastað við höfnina og njóta fyrstu kvöldstundarinnar við Adríahafið.

Gisting: Split (1 af 3 nóttum)

Split – frjálsir dagar við Adríahafið

Síðustu dagarnir í ferðinni eru frjálsir í strandborginni Split við Adríahafið. Ferðalangar geta notið gamla bæjarins í kringum Diocletian-höllina, röltað eftir strandgötunni Riva, slakað á við sjóinn eða farið í bátsferð til eyjanna í nágrenninu.

Nánari lýsing á deginum

Síðustu dagar ferðarinnar eru helgaðir afslöppun og notalegri dvöl í Split, líflegri strandborg við Adríahafið. Eftir ferðalag um fjöll, söguborgir og náttúru Bosníu gefst nú tækifæri til að njóta rólegra daga við sjóinn.

Split er borg þar sem saga og nútímalíf mætast á einstakan hátt. Í hjarta borgarinnar stendur Diocletian-höllin, rómversk höll frá 4. öld sem í dag myndar gamla miðbæinn. Þar liggja þröngar steingötur milli fornra veggja, litlar verslanir, kaffihús og veitingastaðir sem skapa sérstakt andrúmsloft.

Þessa daga geta ferðalangar notið borgarinnar á eigin forsendum. Margir kjósa að rölta um gamla bæinn, setjast niður á kaffihús eða ganga eftir Riva-promenade, strandgötunni þar sem heimamenn og gestir hittast með útsýni yfir höfnina og eyjarnar í fjarska.

Fyrir þá sem vilja njóta strandlífsins eru nokkrar strendur í stuttri fjarlægð frá miðborginni þar sem hægt er að slaka á við sjóinn eða synda í Adríahafinu. Einnig er mögulegt að fara í bátsferðir til nærliggjandi eyja eða skoða fleiri sögustaði í borginni.

Þessum síðustu dögum er ætlað að enda ferðina á rólegum nótum þar sem hægt er að njóta borgarlífsins, góðrar matargerðar og stemningarinnar við Adríahafið áður en haldið er heim til Íslands.

Gisting: Split (3 nætur)

Split – heimferð

Eftir morgunverð og útritun af hótelinu í Split er haldið á flugvöllinn þar sem heimferðin til Íslands hefst. Þar lýkur ferðalagi okkar um Bosníu og Króatíu eftir fjölbreytta og upplifunarríka daga á Balkanskaganum.