1. Almennar upplýsingar og bókun

Balkan Travel skipuleggur og selur hópferðir á Balkanskaga. Með bókun á ferð stofnast bindandi samningur milli farþega og Balkan Travel, að því gefnu að staðfestingargjald hafi verið greitt.

Við leggjum áherslu á persónulega og vandaða þjónustu og að veita ferðalöngum einstaka upplifun byggða á staðbundinni þekkingu og reynslu.

2. Greiðslur

Við bókun skal greiða staðfestingargjald að upphæð 100.000 kr. á mann.

Lokagreiðsla ferðar skal berast eigi síðar en 45 dögum fyrir brottför.

Sé bókun gerð innan 45 daga fyrir brottför skal ferðin greiðast að fullu við bókun.

3. Staðfestingargjald og endurgreiðsla

Staðfestingargjald er að hluta endurgreiðanlegt með eftirfarandi skilyrðum:

  • Innan 7 daga frá bókun: 100% endurgreiðsla
  • Eftir 7 daga frá bókun og meira en 45 dagar í brottför: 50% staðfestingargjalds endurgreitt
  • 45 dagar eða minna í brottför: staðfestingargjald er óendurkræft

4. Afbókun og breytingar á bókun

Ef farþegi afbókar ferð gilda eftirfarandi skilmálar:

  • 45 dagar eða meira fyrir brottför: staðfestingargjald er óendurkræft samkvæmt lið 3
  • 44–30 dagar fyrir brottför: 50% af heildarverði ferðar er óendurkræft
  • 29–15 dagar fyrir brottför: 75% af heildarverði ferðar er óendurkræft
  • 14 dagar eða minna fyrir brottför: 100% af heildarverði ferðar er óendurkræft

Ef óskað er eftir breytingu á ferð, svo sem breytingu á áfangastað eða dagsetningu, telst það almennt sem afbókun á upprunalegri bókun og ný bókun. Í slíkum tilvikum gilda afbókunarskilmálar.

Breytingar á bókun kunna að fela í sér breytingagjald og/eða verðbreytingu eftir aðstæðum.

5. Flug og þjónustuaðilar

Ferðir Balkan Travel eru almennt seldar með flugi nema annað sé tekið fram.

Skilmálar flugfélaga og annarra þjónustuaðila gilda um þann hluta ferðarinnar sem þeir annast og geta verið strangari en skilmálar Balkan Travel.

Balkan Travel kemur fram sem skipuleggjandi ferðar en einstaka þjónustuþættir eru veittir af sjálfstæðum þjónustuaðilum.

Balkan Travel ber ekki ábyrgð á töfum, breytingum eða aflýsingum sem heyra undir flugfélög eða aðra þjónustuaðila.

6. Verð og verðbreytingar

Balkan Travel áskilur sér rétt til að breyta verði ferðar ef breytingar verða á forsendum hennar, svo sem:

  • gengi gjaldmiðla
  • flutningskostnaði, þar á meðal eldsneytisverði
  • sköttum eða gjöldum þjónustuaðila

Verðbreytingar skulu tilkynntar farþegum eins fljótt og auðið er.

Ef verðhækkun er veruleg á farþegi rétt á að rifta samningi án kostnaðar.

Ekki er heimilt að breyta umsömdu verði síðustu 20 daga fyrir brottför.

7. Lágmarksþátttaka og aflýsing ferðar

Lágmarksþátttaka í ferðum Balkan Travel er 15 manns.

Ef lágmarksfjöldi næst ekki áskilur Balkan Travel sér rétt til að aflýsa ferð.

Balkan Travel leitast við að tilkynna um aflýsingu eigi síðar en 21 dögum fyrir brottför.

Í slíkum tilvikum fá farþegar fulla endurgreiðslu.

8. Breytingar á ferðaáætlun

Balkan Travel áskilur sér rétt til að gera breytingar á ferðaáætlun ef þörf krefur, t.d. vegna veðurs, aðstæðna á áfangastað eða annarra óviðráðanlegra þátta.

Allar tímasetningar í ferðaáætlun eru áætlaðar og geta tekið breytingum.

Slíkar breytingar eru gerðar með hagsmuni hópsins að leiðarljósi og teljast ekki til verulegra breytinga ef heildarupplifun ferðar helst sambærileg.

Veruleg breyting telst m.a. breyting á áfangastað, veruleg stytting ferðar eða breyting á megininnihaldi hennar.

Minniháttar breytingar á ferðaáætlun eða þjónustu veita ekki rétt til endurgreiðslu.

9. Aðstæður og ábyrgð

Ferðir Balkan Travel fara fram á svæðum þar sem aðstæður, þjónusta og innviðir geta verið frábrugðnir því sem ferðalangar eiga að venjast á Íslandi.

Smávægilegar breytingar á dagskrá, þjónustu eða aðstæðum geta komið upp og teljast eðlilegur hluti af ferðaupplifun og veita ekki rétt til bóta eða endurgreiðslu.

Balkan Travel ber ekki ábyrgð á breytingum eða tjóni sem rekja má til óviðráðanlegra aðstæðna, svo sem veðurs, náttúruhamfara, verkfalla, stríðs eða annarra atvika sem ekki er hægt að sjá fyrir eða hafa stjórn á.

Balkan Travel ber ekki ábyrgð á þjónustu sem veitt er af þriðja aðila, svo sem flugfélögum, hótelum eða öðrum samstarfsaðilum, umfram það sem kveðið er á um í lögum.

10. Fararstjórn og skyldur farþega

Fararstjóri Balkan Travel er með hópnum á meðan á ferð stendur og ber ábyrgð á framkvæmd ferðarinnar.

Farþegum ber að:

  • fylgja fyrirmælum fararstjóra
  • mæta tímanlega í dagskrá
  • sýna öðrum ferðalöngum tillitssemi

Farþegar bera ábyrgð á að vera í líkamlegu og andlegu ástandi sem gerir þeim kleift að taka þátt í ferðinni án þess að tefja eða hafa neikvæð áhrif á aðra þátttakendur.

Ef farþegi mætir ekki til ferðar eða hættir við hana eftir að hún er hafin, á hann ekki rétt á endurgreiðslu.

Ekki er veitt endurgreiðsla fyrir þjónustu sem farþegi nýtir ekki.

Balkan Travel áskilur sér rétt til að vísa farþega úr ferð ef hegðun hans hefur neikvæð áhrif á ferðina eða aðra þátttakendur. Slík brottvísun veitir ekki rétt til endurgreiðslu.

11. Framsal bókunar

Farþega er heimilt að framselja bókun sína til annars aðila sem uppfyllir skilyrði ferðar, með samþykki Balkan Travel.

Framsal er háð því að skilmálar flugfélaga og annarra þjónustuaðila leyfi slíkar breytingar.

Slíkt getur falið í sér breytingagjöld og annan kostnað sem farþegi ber ábyrgð á.

12. Tryggingar

Farþegar bera ábyrgð á eigin tryggingum, þar á meðal:

  • forfallatryggingu
  • ferðatryggingu
  • sjúkra- og slysa­tryggingu

Við mælum eindregið með að farþegar kynni sér tryggingavernd sína áður en ferð hefst.

13. Vegabréf og ferðaskilríki

Farþegar bera ábyrgð á að hafa gild ferðaskilríki og uppfylla kröfur viðkomandi landa, þar á meðal vegabréf og mögulegar áritanir.

14. Kvartanir

Ef farþegi er óánægður með einhverja þætti ferðar skal tilkynna það tafarlaust til fararstjóra svo hægt sé að bregðast við á staðnum.

Balkan Travel skal fá tækifæri til að bæta úr áður en réttur til bóta myndast.

Ef kvörtun er ekki tilkynnt á meðan á ferð stendur getur réttur til bóta takmarkast eða fallið niður.

Skriflegar kvartanir skulu berast Balkan Travel eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 30 dögum eftir að ferð lýkur. Að öðrum kosti kann réttur til bóta að falla niður.

15. Lög og reglur

Um þessa skilmála gilda íslensk lög, þar á meðal lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018.