Um Balkan Travel

Ég heiti Nejra Mesetovic – Bosnískur Íslendingur og stofnandi Balkan Travel, en fyrirtækið er byggt á minni eigin tengingu við Balkanskagann.

Ég er fædd í Bosníu og uppalin á Íslandi. Frá barnæsku hef ég ferðast reglulega til Bosníu og nágrannalandanna, því er svæðið er ekki bara áfangastaður fyrir mig, heldur hluti af minni menningu og sjálfsmynd.

Samhliða hef ég starfað í íslenskri ferðaþjónustu í yfir 10 ár, meðal annars hjá Ríki Vatnajökuls, Markaðsstofu Suðurlands og Glacier Adventure. Ég hef skipulagt og framkvæmt ferðir, leiðbeint hópum og unnið við markaðssetningu og sölu og veit hvað þarf til að skapa góða og örugga upplifun.

Ég er með BS í ferðamálafræði og MS í markaðsfræði. Sú reynsla og menntun mótar hvernig ég hanna hverja ferð: með jafnvægi á milli skipulags, fagmennsku og persónulegrar nálgunar.

Ég fylgi hópferðunum sjálf og legg áherslu á að hóparnir séu litlir þannig að stemningin sé afslöppuð, samskiptin auðveld og hver og einn geti notið sín.

Þegar þú ferð með mér þá ertu að ferðast með heimamanni sem þekkir svæðið og ber persónulega ábyrgð á heildarupplifuninni.

Af hverju að ferðast með Balkan Travel?

Heimamaður og Íslendingur

Ég er fædd í Bosníu en hef búið á Íslandi mestan hluta ævinnar.
Ég þekki bæði menninguna, tungumálið og staðina sem við heimsækjum – en líka hvað íslenskir ferðalangar vilja og þurfa

Allt skipulagt – þú mætir bara

Flug – Gisting – Veitingastaðir

Samgöngur – Dagskrá – Leiðsögn

Þú þarft ekki að googla, bera saman eða hafa áhyggjur.
Tíminn þinn fer í upplifun – ekki skipulag.

Smærri hópar


Við ferðumst í litlum hópum.

Það þýðir:
Ekkert stress
Engin bið eftir 40 manns
Sveigjanleiki
Betri stemning

Öryggi og staðbundin tengsl

Sterkt tengslanet í Bosníu og Króatíu.

Traustir samstarfsaðilar sem ég hef unnið með.

Persónuleg ábyrgð á hverri ferð.